Leita í fréttum mbl.is

Kjör lífeyrisþega bætt verulega

 Í gær voru kynntar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í þágu aldraðra og öryrkja sem lögfestar verða eftir áramót. Þetta er annað skrefið sem tekið er í að styrkja velferðarkerfi okkar eins og flokkarnir lofuðu fyrir kosningar.

Formenn stjórnarflokkanna þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde eiga hrós skilið fyrir að hafa gengið svo vasklega fram í þessum málum.

Stjórnarflokkarnir voru mjög samstíga í því að þessi velferðarmál, kjarabætur til lífeyrisþega og málefni barna væru forgangsmál.

Á vorþinginu var samþykkt aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum barna og ungmenna sem þegar er farið að vinna eftir í Félagsmálaráðuneytinu og nú voru kynntar ráðstafanir í þágu aldraðra og öryrkja.

Þær fela m.a. i sér að skerðing tryggingabóta vegna tekna maka verður afnumin, sem er mikið mannréttindamál og hefur verið báráttumál hagsmunasamtaka bæði aldraðra og öryrkja. Frítekjumark atvinnutekna lífeyrisþega 67 - 70 ára hækkar í 100.000 á mánuði og vasapeningar lífeyrisþega á stofnunum verða hækkaðir.

Gripið verður til sérstakra aðgerða til að draga úr of- og vangreiðslum tryggingabóta, nokkuð sem hefur komið illa við marga lífeyrisþega sem hafa fengið kröfur um endurgreiðslu hárra fjárhæða frá Tryggingastofnun aftur í tímann, oft ef tekjur þeirra hafa farið örlítið yfir ákveðin viðmiðunarmörk.

Ríkissjóður mun einnig tryggja að ellilífeyrisþegar fái að lágmarki 25 þúsund krónur á mánuði frá lífeyrissjóði frá 1. júlí 2008 eins og lofað er í stjórnarsáttmálanum.

Öryrkjum verða tryggðar sambærilegar kjarabætur en útfærslur verða undirbúnar í tengslum við starf framkvæmdanefndar um örorkumat og starfsendurhæfingu.

Geymið séreignarsparnaðinn í 1 ár!

Þann 1. janúar 2009 verður afnumin skerðing lífeyrisgreiðslna vegna innlausnar séreignasparnaðar. Það hefur verið mikið óréttlæti hvernig séreignarsparnaður hefur að litlu orðið vegna tekjutenginga í almannatryggingunum. Ekki er unnt að breyta þessu fyrr en eftir ár vegna skorts á upplýsingum og af tæknilegum ástæðum. Ég hvet því eigendur slíks sparnaðar að bíða í rúmt ár með að taka hann út, -  eða þar til breytingin verður að lögum um þarnæstu áramót.

Þessi breyting er mikið réttlætismál eins og reyndar allar þær breytingar sem nú eru boðaðar.

Lífeyrisþegar hljóta að fagna þessum tíðindum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta var löngu tímabært. Ég held að það´sé kominn góður félagsmálaráðherra sem lætir ekki svínbeygja sig

Hólmdís Hjartardóttir, 6.12.2007 kl. 03:00

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En það verður enginn kjarabót fyrir einhleypa öryrkja sem eiga langt í land með að vera ellilífeyrisþegar. Þeim verður ekki gert kleyft að drýgja tekjur sínar ofurlítið með hækuðu frítekjumerki á þeirra bætur. Það er allt hirt af þeim aftur og þeir eru lokaðir í fátækargjaldi. Það vita allir að heimiliskotnaður er auðveldari þegar tveir eru um hann. Ástæðan fyrir þessu er sú að þeir sem sjá um þessar breytingar, bæði þeir sem bera fram kröfurnar til stjórnvalda og svo stjórnvöld sjálf eru yfirleitt ekki einhleypir og nenna ekki að setja sig í spor annarra en sjálfs síns. Kjör eynhleypra öryrkja eru þau erfiðustu og þið gifta fólkið haldið áfram að yppta öxlum yfir þeim. Þeir eiga ekki sjens fyfir ykkar daðri við makafólk.

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.12.2007 kl. 05:50

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fátæktargildru á að standa þarna.

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.12.2007 kl. 05:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband